Útgáfubækur - Publications
Eitt aðalverkefni Árnastofnunar hefur verið að gefa út íslenska texta frá fyrri öldum, þegar ritverk dreifðust og varðveittust í handritum. Miðaldarit sem út eru gefin hafa flest verið prentuð áður, en fyrri útgáfur þeirra ekki verið fullnægjandi, og frá öldunum eftir siðbreytingu eru varðveitt fjölmörg íslensk rit, frumsamin og þýdd, sem aldrei hafa verið prentuð.
Tiltölulega fá rit frá því fyrir 1800, og nær engin miðaldarit nema fornbréf, eru varðveitt í frumriti; þau eru til okkar komin í misgömlum eftirritum, oft fjölmörgum. Viðfangsefni útgefanda er meðal annars að leitast við að komast sem næst upphaflegum texta, og til þess þarf að rannsaka skyldleika allra handrita og gera grein fyrir honum. Síðan er prentaður texti eins handrits (eða fleiri, ef munur handrita er mjög mikill), en neðanmáls eru prentuð lesbrigði, það er að segja orðalagsmunur annarra handrita sama texta, sem hafa sjálfstætt gildi (þ.e. ef frumrit þeirra er óþekkt). Þegar unnið er að slíkum útgáfum þarf oftast að smala saman handritum eða ljósmyndum handrita úr mörgum söfnum, og útgáfustarfið er mikið nákvæmnisverk og seinunnið.
Fræðilegar textaútgáfur eru að öllum jafnaði með stafsetningu þeirra handrita sem prentað er eftir. Þær eru því ekki fjarska aðgengilegar almenningi, þó að hver íslenskur lesandi geti í rauninni lesið þær sér til fróðleiks og ánægju. Þessar útgáfur eiga að vera grundvallarrit fræðimanna sem um texta þeirra fjalla í málfræði, bókmenntafræði eða sagnfræði og jafnframt þeirra sem búa til prentunar aðrar útgáfur sömu texta með samræmdri stafsetningu, ætlaðar nemendum og almenningi. Auk þess gefur stofnunin út tímaritið Griplu sem heitir eftir handriti sem nú er glatað en vitað er að hafði margvíslegan fróðleik að geyma. Nafnið höfðar einnig til þess að því er ætlað að birta greinar sem sérfræðingar Árnastofnunar og aðrir fræðimenn hafa unnið í ígripum.
Ennfremur má geta þess að starfsmenn gefa einatt út fjölrituð smárit til heiðurs samstarfsmönnum sínum er þeir eiga merkisafmæli. Síðustu árin hafa þessi rit verið kennd við Menningar- og minningarsjóð Mette Magnussen, en eiginkona Árna Magnússonar hét Mette. Útgáfa þessi er algjörlega óháð stofnuninni formlega og fjárhagslega en rit Mettusjóðs hafa þó verið þar til sölu.
Árnastofnun
selur útgáfubækur sínar og tekur einnig á móti föstum áskriftum að ritum stofnunarinnar
og afgreiðir beint til viðskiptavina heima og erlendis. Útgáfa
á bókum stofnunarinnar er nú í höndum Háskólaútgáfunnar,
sem einnig sér um dreifingu á þeim.
Áskrifendur fá 15 % afslátt frá listaverði bókanna. Virðisaukaskattur og sendingarkostnaður
eru ekki innifalinn í verði. Bækurnar eru einnig fáanlegar í gegnum bóksala.
Auk
útgáfubóka Árnastofnunar má einnig fá keyptan þar ýmsan varning, svo sem póstkort
með myndum af handritum, lýsingum, textum og fleiru, svo og veggspjöld.
|