
HANDRITASÝNING ÁRNASTOFNUNAR
Á
sýningu Árnastofnunar í Þjóðmenningarhúsinu
Hverfisgötu 15 í Reykjavík eru ýmis merkustu handrit
í vörslu stofnunarinnar: Konungsbók
eddukvæða með sögnum af heiðnum goðum og germönskum
hetjum, Flateyjarbók
stærst og heillegust allra íslenskra handrita og auðug að
efni um sögu Norðurlanda og siglingar um Norður-Atlantshaf. Meðal
annarra miðaldahandrita má nefna Snorra-Eddu,
lagahandritið Grágás,
og Íslendingasagnahandritið Möðruvallabók
sem geymir ellefu Íslendingasögur, þ. á m. Njáls
sögu, Egils sögu og Laxdælasögu. Þar eru einnig
merk pappírshandrit sem sýna lifandi viðtökur bókmenntaarfsins
á síðari öldum.
Í fremsta
sal sýningarinna er brugðið ljósi á menningarlegt
og sögulegt hlutverk íslenskra miðaldahandrita og efnisins
sem þau geyma fram til okkar daga. Kvæðin og sögurnar
eru meðal auðugustu heimilda um andlegt líf fólks í
Norðurálfu fyrir kristni, uppspretta þekkingar og skemmtunar
við konungshirðir og á alþýðuheimilum. Ritmenningin
sem kirkjan flutti gerði kleift að skrá þessa þekkingu
við hlið nýrrar með skipulegum hætti. Ritaðar
voru frásagnir um hvernig land var numið og féll í
hlut ættum og einstaklingum, lagatextar voru skráðir og á
grunni fræða sem lifað höfðu í síbreytilegri
mynd á manna vörum urðu til sígild bókmenntaverk.
Þessi menningararfur hafði víðtæk áhrif,
m.a. á Norðurlöndum, Þýskalandi og í löndum
enskumælandi þjóða. Þá eru myndir á sjónvarpsskjám
sem segja frá handritasöfnun Árna Magnússonar og heimkomu fyrstu handritanna
til Íslands 1971 og gestir hafa aðgang að tölvum með ríkulega myndskreyttu
efni um
goðafræðina auk
fræðsluefnis um handritin.
Í sérstökum sal er sýnt inn í heim bókagerðar
á miðöldum; skinnaverkun, bleksuðu og gerð lita
úr litasteinum auk þess sem brugðið er upp sýnishorni af þeim
aðstæðum sem bókagerðarmenn og skrifarar bjuggu við á miðöldum, sýnd
tæki, tól og efniviður auk sýnishorna af rithöndum
frá miðri 12. öld og fram undir miðja 19. öld.
Í tengslum við sýninguna hefur verið gefið út vandað og fagurlega myndskreytt
rit, Handritin
- ritgerðir um íslensk miðaldahandrit, sögu þeirra og áhrif - sem
geymir sautján ritgerðir þar sem fræðimenn gera með aðgengilegum hætti grein
fyrir sögu handritanna og áhrifum þeirra á síðari tíma. Bókin er fáanleg í
sölubúð Þjóðmenningarhússins og hjá Árnastofnun og kostar 3.100 kr. Einnig
eru til sölu kort og veggspjöld með myndefni úr handritum.
Sýningin
er opin alla daga kl. 11:00 - 17:00. Aðgangseyrir er 300 kr. á allar sýningar
í húsinu. Ókeypis aðgangur á miðvikudögum.
Nemendur eru nú
sem endranær velkomnir á handritasýninguna þar sem þeir, undir handleiðslu
safnkennara stofnunarinnar, fá fræðslu tengda námsefni sínu og eru slíkar
heimsóknir ókeypis. Nánari upplýsingar um fræðslustarfið
má fá hér.
Höfundar
sýningarinnar eru Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor
á Árnastofnun, og Steinþór Sigurðsson, leikmyndahönnuður og listmálari.
Í sýningarnefnd Árnastofnunar sátu: Svanhildur
Gunnarsdóttir, safnkennari; Hersteinn Brynjúlfsson, handritaforvörður;
Ólöf Benediktsdóttir, bókavörður; Jóhanna
G. Ólafsdóttir, ljósmyndari; Rósa Þorsteinsdóttir,
þjóðfræðingur og Vésteinn Ólason,
forstöðumaður.
|