| Forsíða | Starfsmenn | Gestir | Fréttir | Tenglar | Innri vefur

 


Forsíða > Handritasýning


Fræðsla um handritin fyrir skólahópa í Þjóðmenningarhúsinu v/ Hverfisgötu, Rvk.                                          
Á sýningunni eru nú fimmtán valin handrit frá fyrstu öldum ritmenningar og telja má til helstu gersema þjóðarinnar,
auk margskonar fróðleiks um sögu Íslands og menningu.


Safnkennari tekur á móti nemendahópum sem óska eftir að fá fræðslu um handritin okkar gömlu auk kynningar á menningu íslensks miðaldasamfélags. Aðeins er tekið á móti einum bekk í einu og mega kennarar gera ráð fyrir tæplega klukkustundar langri heimsókn.

.

Í máli og myndum eru nemendur fræddir um munnlega geymd sagna- og kvæðaarfsins, um ritun og gerð íslenskra miðaldahandrita og varðveislu þeirra fram á okkar daga. Fjallað er um bókmenntir, sögu og menningarlíf þjóðarinnar og bókagerðina sjálfa; skinnaverkun, bókbandið, skreytilist (lýsingar), blekgerð, liti og þróun skrifleturs auk fjaðurpennaskurðar eins og hann tíðkaðist fyrr á öldum. Skýringardæmi sýna ólíkar leturgerðir í miðalda- og síðari tíma handritum og sérstaka rittækni skrifaranna, þ.e. skammstafanir, styttingar og bönd og gefa þau nemendum tækifæri til að spreyta sig við lestur fornra texta. Með því kynnast þeir af eigin raun hversu lítið íslensk tunga hefur breyst í aldanna rás. Nemendum gefst síðan tækifæri til að tylla sér niður við langborð tvö og skrifa á kálfskinn með tilskornum fjaðrapennum og bleki soðnu úr sortulyngi, víðileggjum og mýrarsortu.

 

Tekið er á móti nemendum á handritasýninguna virka daga eftir samkomulagi. Fræðslustarfið tekur mið af námskrá grunnskólanema frá 4. - 10. bekkjar auk framhalds- og háskólastigs, en ætíð er reynt að sníða hana sem best að þörfum nemenda hverju sinni. Skólahópar greiða ekki aðgangseyri. Frekari upplýsingar um fræðslustarfið og bókanir heimsókna veitir safnkennarinn  Svanhildur Gunnarsdóttir M.A., svanberg@hi.is    

Kennarar geta undirbúið heimsóknina með nemendum með því að skoða fræðsluvefinn Handritin heima en höfundar hans eru Laufey Guðnadóttir og Soffía Guðný Guðmundsdóttir. Hluti efnisins á vefnum var unninn í nánu samstarfi við safnkennara Árnastofnunar þar sem efnið, sem miðlað er til nemenda með safnfræðslunni, var lagt til grundvallar.


Skyggnst í söguna - Myndirnar hér að neðan sýna áhugasama nemendur Iðnskólans í Reykjavík spreyta sig við skriftir í "miðaldaskrifarastofu" handritasýningarinnar.

„Nemendur á Upplýsinga- og fjölmiðlabraut skólans leggja stund á letursögu og læra sitt af hverju um þróun leturs og letrunar frá því að forsögulegir forfeður byrjuðu að tjá sig á hellisveggjum til þess að farið var að nota ýmis verkfæri til að skrifa með. Meðal annars leggja nemendur stund á letrun, öðru nafni skrift, með skrautskriftarpennum. Nokkra undanfarna daga hafa nemendur ásamt kennurum farið í Þjóðmenningarhúsið og skoðað þar handritasýningu undir skemmtilegri og fróðlegri leiðsögn Svanhildar Gunnarsdóttur safnkennara hjá Árnastofnun. Hluti heimsóknarinnar fólst í að fá að æfa skrift með fjöðrum á skinnbúta, í anda Snorra og annarra skrifara fortíðar.”

„Í þessum skáp geymir Svanhildur tæki sín og tól og til að mynda blek úr sortulyngi, mó og víðileggjum, sem sérstaklega er blandað og soðið af Ágústi H. Bjarnasyni grasafræðingi, litasteina, fjaðrapenna, leiðréttingahníf, þvagblöðru úr grís og horn af skepnum til blekbyttugerðar, kálfskinnsbúta og annað sem til þarf í handritagerð.” (Myndir og texti: Haukur Már Haraldsson, kennari við IR.)

 

 
Forsíða > Handritasýning



©Stofnun Árna Magnússonar