Ljósmyndasafn
Markmið
Árnastofnunar er að eignast filmur og ljósmyndir af öllum
íslenskum handritum sem varðveitt eru erlendis. Mikið vantar
á að því marki hafi verið náð, en allmiklu
safni hefur þó verið komið upp á liðnum árum.
Á
ljósmyndastofu stofnunarinnar er nú unnið að stafrænni myndatöku handritanna
og hefur nú þegar verið myndaður í stafrænu
form fjöldi handrita í vörslu Árnastofnunar og eru
þær myndir nú aðgengilegar á heimasíðu
stofnunarinnar undir tenglinum Stafrænt
handritasafn og á Sagnaneti,
sem stofnunin er í samstarfi við vegna birtingar á handritamyndum
á Netinu í stafrænu formi.
Þó
að ljósmyndir komi ekki að fullu í stað handrita
eru þær handhægari að vinna með, og við notkun
þeirra er handritunum hlíft við óþarfa sliti.
Ljósmyndastofa er í Árnastofnun, og er hægt að
panta, gegn gjaldi, filmur og ljósmyndir úr handritum stofnunarinnar
vegna rannsókna og til birtingar. Hægt er að fá upplýsingar um filmu-
og myndaeign stofnunarinnar með því að senda tölvupóst á netfangið olofbe@hi.is
Hægt
er að panta myndir og filmur vegna rannsókna og til birtingar í ritum, gegn
greiðslu. Þær eru afgreiddar stafrænt á geisladiskum. Stofnunin selur birtingarrétt
á þeim myndum sem hér eru teknar og farið er fram á að þess sé ævinlega getið
hvaðan myndirnar eru komnar. Stofnunin á nokkurt safn örfilma og ljósmynda
af íslenskum handritum í erlendum söfnum. Stefnt er að því að fylla í það
safn en Danir gáfu til þess fé á ellefu alda afmæli Íslandsbyggðar. Í tengslum
við lok handritaskiptanna hétu íslensk stjórnvöld stofnuninni sérstökum fjárveitingum
til þess að koma sér upp á næstu árum ljósmyndum af þorra íslenskra handrita
sem eftir verða í dönskum söfnum. I Den
Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn eru til örfilmur og ljósmyndir
af öllum þeim handritum sem þaðan komu og hingað heim.
Sími: 525 4021
Fax: 525 4035
Ljósmyndari: Jóhanna
Guðrún Ólafsdóttir
Netfang: joholaf@hi.is
|