| Forsíða | Starfsmenn | Gestir | Fréttir | Tenglar | Innri vefur

 


Forsíða > Handritasafn


Handritasafn Stofnunar Árna Magnússonar

Að lokinni afhendingu handritanna frá Danmörku árið 1997 eru í handritasafni stofnunarinnar rúmlega sextán hundruð handrit og handritahlutar úr safni Árna Magnússonar, auk allra íslenskra fornbréfa og fornbréfauppskrifta úr Árnasafni. Til viðbótar eru nær hálft annað hundrað handrita úr Konungsbókhlöðu. Frá öndverðu var um það samið að afhendingin gæti tekið allt að aldarfjórðungi, enda voru öll handrit ljósmynduð fyrir afhendingu og gert við mörg þeirra. Afhendingu handritanna lauk 19. júní 1997 þegar rúm 26 ár voru frá komu þeirra fyrstu til landsins.

Stofnunin hefur í sinni vörslu fleiri handrit en þau sem henni hafa borist frá Danmörku. Kunnast þeirra er Skarðsbók postulasagna, skinnbók frá 14. öld sem var keypt til landsins frá Lundúnum 1965. Einnig hefur stofnunin keypt eða fengið að gjöf allmörg handrit og handritsbrot, samtals um sjö tugi.

Þar að auki hefur stofnunin jafnan að láni vegna rannsókna allmörg handrit úr öðrum söfnum, m.a. í Danmörku og Svíþjóð, en flest úr handritadeild Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafns sem á langstærsta safn íslenskra handrita sem til er, einkum frá síðustu öldum. Fjöldi íslenskra handrita er varðveittur í erlendum söfnum. Langflest hin elstu þeirra hafa verið í Danmörku og Svíþjóð, og þar eru einnig fjölmörg handrit frá síðari öldum.

Íslensk handrit eru einnig ófá á Bretlandseyjum og í Noregi og fáein í öðrum löndum. Á fyrstu árum Handritastofnunar fóru starfsmenn hennar, Jónas Kristjánsson, Ólafur Halldórsson og Jón Samsonarson, með stuðningi UNESCO í skráningarleiðangra í allmörg erlend söfn þar sem skrár um íslensk handrit voru ófullkomnar eða engar.

Auk handrita varðveitir stofnunin fjölda fornbréfa sem Árni Magnússon safnaði.

Forsíða > Handritasafn



©Stofnun Árna Magnússonar