| Forsíða | Starfsmenn | Gestir | Fréttir | Tenglar | Innri vefur

 


Forsíða > Bókasafn


Bókasafn

Rannsóknabókasafn

Bókasafn Árnastofnunar er rannsóknabókasafn og eitt öflugasta sérsafn á landinu í íslenskum fræðum, evrópskum miðaldafræðum og þjóðfræðum, og með nýrri bókagjöf mun það enn eflast til muna. Safnið er ætlað til afnota fyrir sérfræðinga stofnunarinnar og gesti, sem stunda rannsóknir eða hafa áhuga á fræðasviði hennar og þurfa á bókakosti þess að halda. Rit eru ekki lánuð út en fólki er eftir föngum veitt aðstaða til lestrar.

Rannsóknastofnun þarf á góðum bókakosti að halda og hafa ýmsir orðið til þess að leggja Árnastofnun lið við uppbyggingu góðs rannsóknabókasafns. Einstaklingar, stofnanir og erlend ríki hafa fært henni verðmætar bókagjafir, en mest munar um tvær höfðinglegar gjafir sem stofnunin hefur fengið.

Fyrst er að nefna bókasafn hjónanna Þorsteins M. Jónssonar (1885 - 1976) skólastjóra og þingmanns og Sigurjónu Jakobsdóttur, sem íslenska ríkið keypti handa Árnastofnun en jafnframt gáfu seljendur stofnuninni rúman helming kaupverðsins og er vöxtum af þeim sjóði, sem var stofnaður árið 1974, varið til frekari bókakaupa. Í safni Þorsteins og Sigurjónu eru m.a. margar verðmætar bækur og tímarit frá fyrri öldum.

Í öðru lagi fékk stofnunin að gjöf 500 þúsund Bandaríkjadali, um 35 milljónir króna, frá erlendum velunnurum árið 2004. Með þessu fé var stofnaður minningarsjóður Birgit Baldwin (1960-1988) og á að verja ávöxtun sjóðsins til að efla bóka- og tímaritakost Árnastofnunar. Stofnendur sjóðsins eru sagnfræðingarnir prófessor Jenny Jochens og prófessor John Baldwin. Með stofnun sjóðsins vilja þau minnast dóttur sinnar, sem lést í bílslysi 17. júní 1988.


Lestrar- og vinnuaðstaða er fyrir 14 gesti á lestrarsal.
Sækja þarf um aðstöðu með nokkrum fyrirvara. Þeir sem óska eftir borði á lestrarsal skulu hafa samband við skrifstofu stofnunarinnar í síma 525 4010, bréfsíma 525 4035 eða netfang rosat@hi.is.

Safnið á aðild að Gegni, sameiginlegu tölvukerfi allra helstu bókasafna á Íslandi.
Safntákn Árnastofnunar í kerfinu er "sám", og er allt bókasafn Árnastofnunar, ásamt tímaritum, skráð þar.

Safnkostur er um 19.000 bækur og 140 tímaritatitlar og mikill fjöldi sérprenta. Efnissviðið er einkum handritafræði, íslensk málfræði, þjóðfræði og íslenskar og evrópskar miðaldabókmenntir og -sagnfræði. Meðal rita er góður kostur uppflettirita á fræðasviðinu.

Sími: 525 4022
Fax: 525 4035
Bókavörður: Ólöf Benediktsdóttir
Netfang: olofbe@hi.is

Forsíða > Bókasafn



©Stofnun Árna Magnússonar